Ég
fékk skemmtilega bón í síðustu viku um að birta með reglulegu millibili
matarpistla á vefinn Innihald.is sem er rosalega flottur vefur um málefni
líðandi stundar. Ég mun halda áfram að blogga hér, enda tilgangurinn fyrst og
fremst með þessu bloggi að halda utan um uppáhalds uppskrfitirnar mínar á einum
stað. Ég er auðvitað mest ánægð að heyra af vinkonum og vinum sem geta nýtt þetta líka.
Ég
er auðvitað bara áhugakvendi og matarpervert af hjarta og sál og veit hvað er
gott á bragðið. Þannig að vonandi hneyksla ég enga atvinnumenn með
amatúrheitum.
Dagurinn
verður æði. Konudagur OG óskarsverðlaunin í kvöld. Á konudaginn eru allir
strákar sem ég þekki góðir og kurteisir og fínir - enda allir piltarnir mínir
fyrirmyndamenn. Í kvöld er síðan rauði dregillinn og allt fræga og
fína fólkið að flissa saman í fallegum fötum. Ég er búin að sjá lang-flestar
tilnefndu myndanna en einhverjar á ég inni. Ég ætla að twittera eins og óð í
dag, kvöld og nott um myndirnar, tískuna og síðast en ekki síst Seth MacFarlane
sem verðua að stjórna hátíðinni í fyrsta skipti. Hann er faðir Family Guy sem
eru þættir í miklu uppáhaldi á þessu heimili. Ég er á Twitter undir @majae
- reyndar var ég bara að bursta rykið af twitter accountinum mínum en ég ætla
að gera aðra tilraun til að detta í menninguna þar.
Þegar
ég vaknaði í í faðmlögum við Maccann setti ég Zeppelin á fóninn og ákvað að
skoða hvað ég gæti mixað saman í eldhúsinu. Lög eins og Tangerine, Fool in the Rain og
Going to California fara afskaplega vel með konudagsbrölti. Sérstaklega Going to California sem er í miklu uppáhaldi þessa dagana.
Almennt
þá forðast ég hveiti, sykur og sterkju í mínu matarræði. Stundum bregð ég útaf
vananaum og í dag er sá dagur. Um helgar
geri ég yfirleitt alltaf Hafrapönnsurnar mínar en ég ákvað að nýta
þetta heilhveiti sem ég átti uppí skáp. Held það væri sniðugt líka að nota
spelt ef það er til. (yfirleitt er alltaf hægt að skipta út spelti eða heilhveiti
bara út fyrir hvítt hveiti (sem er frá djöflinum) án þess að það komi niður á
bragði. Á þetta bæði við afmæliskökur og brauðbakstur.)
Þessi
skammtur ætti að duga fyrir fjóra stóra menn eða 3 einstæðar mömmur með eitt
barn hvor.
Þar
sem ég var að búa til uppskrift jafn óðum og hún varð til þá urðu pönnsurnar
ekki jafn margar og ættu að vera en ég gleymdi að setja egg út í fyrstu þrjár. Fannst vanta smá
sætindi í næsta smakki og svo klúðraði ég smá meira og þannig koll af kolli.
Niðurstaðan er samt þessi, og þó ég segi sjálf frá, að þetta eru ljómandi góðar
amerískar heilhveitipönnsur í hollari kantinum.
Best
er að setja bara þurrefnin saman í skál og svo hræra mjólkinni útí rólega (til
að það myndist ekki kekkir) og svo sulla restinni af blauta dóteríinu útí. Ég
nota ekki smjör eða olíu þegar ég er að setikja heldur nota ég Pan Am sprey.
Þeir sem vilja meina að eiturefnin í því séu verri heldur en kaloríurnar í
olíunni/smjörinu mega fara eitthvert annað því ég hlusta ekki á svona vitleysu.
Eða finna almennileg rök fyrir því á internetinu og senda það á tölvupósti á:
idontcare@gohome.isUppskrift:
2 tsk lyftiduft
1/2 tsk salt
3 dl létt mjólk
2 msk ólive olía
1 egg
1/2 - 1 tsk agave sýróp
1/2 tsk vanilludropar
1/3 tsk sítrónudropar
Það elska allir beikon. Í tilrauneldhúsi Maríu gerði ég samt beikon sallat um daginn sem var svo rooooosalega vont að mig hryllir enn við tilhugsuninni við að borða beikon. Þannig að ég steikti tvær skinkusneiðar sem ég skar í strimpla. Það kom ljómandi vel út.
Þetta ber ég fram með Caffe Latte að hætti hússins með sykurlausu vanillusýrópi og haug af ást.
Njótið dagsins og áfram Django Unchained !! Jú og konur.






