Hann er næstum jafn sexy og Jeremy Clarkson.
Tónlistin yfir eldamennskunni var Led Zeppelin í tilefni þess að ég var að kaupa mér miða á Celebration Day í Háskólabíó eftir mánuð. Þetta er mjög mikilvægt atriði í eldamennskunni - tónlist (að eigin vali) verður að vera í gangi !
Hér sést eitt af uppáhalds-eldunarráðunum mínum þegar ég geri sósur og súpur. Það sýður ekki uppúr ef þú geymir sleifina svona.
Næst setti ég 1/2 flösku af Huntz Chili Sósu útí og bætti útí meiri pipar (ca 1/2 tsk), 1 tsk chili duft, og bætti útí það rauðum pipar, paprikukryddi 1. tsk og eins og 1/2 tsk steinselju (þurrkuð). Síðan var þetta látið malla í smá stund. Bætti einnig við 1/2 l af vatni.
Það góða við að gera súpur er að maður getur látið þetta malla og smakkað til eins lengi og maður nennir.
Næst skar ég niður papriku (notaði 1/2 papriku og sakaði smátt) og skellti því útí súpuna. Reif kjúklinginn á meðan ég talaði í símann við Bjarna minn um lífið og tilveruna. Bætti útí "pinch" af Maldon salti (nota ekkert annað í eldhúsinu). Það fór ofaní pottinn og við tók biðin eftir Júlíu - hún var sumsé að koma úr borginni með niðursoðna tómata sem ég átti ekki á lager. Áfram mallaði súpan
Þessir eru mjög duglegir að hjálpa til í eldhúsinu.
Þar sem Júlía gleymdi að fara í Bónus greip hún fyrir mig tómata í Baulunni og þar voru bara til niðursoðnir heilir faggar. Hugsaði málið ekki alveg til enda þegar ég henti þeim útí súpuna. Því þurfti ég að veiða tómatana uppúr og saxa þá niður. Það var mjög hressandi twist. Mæli með því að muna eftir því að saxa fyrst ef þið farið í þessa tilraun með heila tómata. Setti útí 1 tsk af þurrkuðum kóríander, aðeins meiri pipar og chili og látin malla aðeins á meðan tómatarnir fengu að smjúga inní gumsið.
Súpan var dásamleg, ekta haustmatur og í hollari kantinum þó mig gruni að chlisósan lumi á slatta af sykri. Þar er t.d. hægt að spara sér hitaeiningar með að kaupa sér bragðbætta niðursoðna tómata t.d. með hvítlauk og steinselju og bæta því upp chilibragði með kryddi. Krónprinsinn fékk sér dorritos útá súpuna á meðan ég setti örlítinn sýrðan (10%). Ca. 1 tsk. Sandra kom og fékk sér að borða með okkur og hér fóru allir sáttir frá borði.
Uppskriftin:
1. msk olía.1 laukur
2. l vatn.
2 stórar gulrætur.
1/2 flaska af huntz chili sósu. Hægt að nota maukaða tómata í staðinn.
1/2 rifinn kjúklingur.
1/2 rauð paprika (átti hálfa síðan i sallat gerð). Vel hægt að nota meira af papriku.
1 dolla niðursoðnir tómatar (mæli með að kaupa þá saxaða).
Kryddin sem ég notaði voru: þurrkaður kóríander, þurrkuð steinselja, chili duft, paprikukrydd, hvítlauksduft, pipar og Maldonsalt.
Vona að þið njótið vel kæru vinir og munið að betra er að fara á kostum en taugum. [S. Stormsker]
xoxo. - majae.
No comments:
Post a Comment